www.blog.central.is/styrimenn
Afþreying og skemmtun
Myndaalbúm
Strákarnir á borginni
17.09.2007 13:07:32 / Árni

NÝ BLOGGSÍÐA

Jæja nú höfum við sett á laggirnar nýja bloggsíðuslóðin er : 123.is/styrimenn

 

Frissi biður að heilsa og bíður alla velkomna í partý

 

123.is/styrimenn


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.09.2007 18:37:42 / NIKEARINN

Happadís GK 16


Happadís GK 16 aflahæst

krókaaflamarksbáta í þorski

-- Hrólfur Einarsson og Narfi með mestan afla í ýsu og steinbít

14.9.2007

Á nýliðnu fiskveiðiári var Happadís GK úr Garði með mestan þorskafla krókaaflamarksbáta eða 812 tonn. Hrólfur Einarsson frá Bolungarvík var hæstur í ýsunni með 479 tonn og Narfi fá Stöðvarfirði gerði það best í steinbít með 406 tonn.

Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda (www.smabatar.is) og upplýsingarnar unnar upp úr gögnum Fiskistofu. Hér að neðan er skrá yfir 5 aflahæstu krókaaflamarksbátanna í þorski, ýsu og steinbít.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 11:53:16 / Friðgeir Smári

Endalaus gleði í Styrimannaskólanum

já þá er komið að næstu gleði hjá okkur Styrimönnum.

Diskó keilaJá kæru Styrimenn það þyðir ekkert að slá slöku við í skemmtana lífinu hjá okkur!! Við höfum ákveðið að hafa Keilu kvöld þann 21. Sept kl. 21:00 tímanlega! í keiluhöllinni.  Já og mælum við eindregið með að menn mæti því þetta er bara fjör!! Það mun kosta 1000 kr. Sem er eins og áður hefur verið nefnt, gjöf en ekki gjald!! Vinningur verður veittur fyrir fyrsta sætið!

Skráningarlisti verður hengdur upp á mánudagin á skrifstofu styrimanna….

 Já skemmtisiglingin var síðustu helgi, sem lukkaðist með tilþrifum vel!  Ekki lagðist nú þessi sjómenska vel í alla þar sem sumir lágu bara í koju.. hehe en á meðan aðrir kepptust við að hella í sig lífsins nauðsinjum!!:haha:

 


» 16 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 16:54:25 / Árni

Skemmtisigling

Jæja gott fólk þá er komið að því.

Siglingin með Eldingu II verður föstudagskveldið 7. sept. Farið verður frá Ægisgarði og er brottför kl 20:00 stundvíslega. Mæting er kl 19:30.

Nóg verður af mjöði í boði þess vegna verðum við að virða 18 ára aldurstakmark.

Prísinn er 1500 kall sem er gjöf en ekki gjald

Takmarkað sætaframboð

Skráningarblað er á hurð Nemendafélagsins á 1. hæð.

Svo verður drukkið eins og morgundagurinn sé enginn


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 09:28:47 / Árni

Harkið hefst að nýju

Harkið hafið og nú skulu hendur fram úr ermum fara eftir allt sumarfríið, eða þannig!!.

Leit inní stofu 301 þar sem Kjarri var að kenna STL 102, brá heldur betur þegar ég sá hve margir nýir hafa bæst í hópinn. Mikið fleiri en nokkur lifandi þorði að vona.

En nú er siglingin framundan þó ekki sé vitað með vissu hvenar hún verður, en hún verður það er öruggt og  ennþá öruggara er að mjöðurinn mikli verður þar líka.

 

En nú fer nefndin að koma saman og skipuleggja veturinn.

Látum ykkur vita við fyrsta tækifæri


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 19:36:11 / Friðgeir Smári

Smá færsla

Jæja komiði sæl gott fólk til sjávar og sveita!!

vegna sumarfrís hefur síðan legið niðri hjá okkur stýrimönnum og allir á sjó svo ekki hefur verið hægt að blogga. Ég ætlaði að fá staðgengil minn hann Lárus Jónsson (Lalla Jhons) en hann var vant við látinn því hann sat á hrauninu og ekki treyst fyrir netsambandi, svo losnaði kauði út og kom þá í ljós að hann kynni ekki að skrifa, og með herkjum og mikilli baráttu rétt talandi...8)

en nóg um það, það líður hratt að haustinu og því fer skólinn að byrja á ný. Margir gammlir og góðir menn hættu í vor, ja eða sjálf hætt því þeir útskrifuðust. En margir nyjir munu koma í staðinn og hjalpa okkur við að skóla sig til og tæma glösin, og verður lífsins vökva rennt niður sem aldrey fyrr!! :haha:

En ljót er staðan hjá okkur blessuðu sjómönnum. vilja nú póutíkusarnir skerða þorskkvótan hjá okkur um 30% .. Og því er háttvirtur sjávarútvegsráðherra sammála, en það skiftir ekki máli fyrir hann því ekki skerðast launin hjá honum. og heldur ekki hja politíkonum sem sitja á þingi og eldrey hafa  migið í saltan sjó og aldrey séð spriklandi fisk!! nema þann fisk, sem þeir sjá á eldhúspönnuni hjá mömmu sinni.............helvitis jakkafataklæddu kellingar,  en jæja jæja ekki þíðir að þrátta og gráta það eru víst þessir kallar sem ráða...      nema eins og einn kallinn sagði í útvarpinu, Enginn skal fara eftir þessum ráðum hja þessari pissublautukellingu (sjavarútvegsráðherra) og hunsa þetta kjaftæði og halda áfram að veiða og þá allir því þá verður ekkert hægt að gera!!  .... þetta sagði einhver vestan maður, og lét fylgja að sjavarútvegsráðherra skyldi ekki láta sjá sig á götonum heima fyrir vestan aftur!! hehe sá var ekki að vanda honum kveðjurnar

en svona er þetta  maður veit ekki..... ,Er nægur þorskur í sjónum??

Mér persónulega finst þá að það ætti að skerða kvótan á mellurnar líka hjá fraktara sjómönnum svona rétt til að vera ekki að mismuna hinum;)

 

 

En nóg komið af kjaftæðinu í bili, bloggið fer á fulla ferð aftur í haust..... 


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.05.2007 03:13:07 / Garðar

costa

hér erum ég og raggi resq. á hótelinu strákarnir eru down town lúlli er búinn ad baeta vid sig 17 nyjum ensku slettum fórum í tívólí í bátana og ég var bestur.

 

 

kv.strakarnir af costa bidja a`d heilsa...


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.05.2007 15:11:12 / Árni

Skrifstofunni hefur verið lokað

Búið er að loka skrifstofunni og ganga þar frá öllu. Enn eru að vísu eftir kompásblöð og ef kompásmenn ætla að nálgast þau er hægt að prufa að hafa samband við mig eða þá að tala við Gest.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 16:07:56 / Árni

SVARTI LISTINN !!!!

Enn eru nöfn á svarta listanum og eru eftirfarandi:

Atli Rúnar 1800 kr

Geiri  400 kr

Guðmundur Ragnar 600 kr

Kolla 400 kr

Egill 400 kr

Bjarni Már  1400 kr

Lýður 800 kr

Brynjar Unnars 200 kr

Jón Sigurgeirs 400 kr


Vinsamlegast borgið inná  Reikning 0111-26-6110. Kt 610988-1139 

Borgið sem allra allra fyrst

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 14:26:26 / Árni

Sumarfrí

Prófin eru að renna sitt skeið og í síðasta skiptið hjá sumum. Langar að þakka útskriftarnemum kærlega fyrir að fá að kynnast þeim og vona að við höldum góðu sambandi. Nemendafélag Stýrimannaskólans, gæti ég trúað ,að væri eitt af allra fámennustu félögum landsins. En þá sannast sá málsháttur að "þótt fámennt sé þá góðmennt er". Ekkert nemendafélag vil ég fullyrða hefur staðið fyrir jafn mörgum og stórum viðburðum eins og við erum búinn að gera í vetur mætti nefna 8 vísindaferðir, kvöldsiglingu, poolmót , keilumót, utanlandsferð,árshátíð, grillveislu, svo sáu stýrimenn um 2 fótboltamót og 1 körfuboltamót á vegum skólans, létum framleiða flíspeysur, erum með derhúfur og nú síðast komu T-bolir. Þetta gerist ekki betra vil ég meina innan nemendafélaga og þetta gátum við 50 manns. En að lokum tek ég mér það bessaleyfi fyrir hönd stjórnar nemendafélagsins og þakka öllum félögum í Nemendafélagi Stýrimannaskólans fyrir veturinn og vonandi sjáumst við flest í haust. Til hamingju með útskriftina strákar og vonandi verði þið landi og þjóð til sóma í því sem þið takið ykkur fyrir hendur.

Sumarkveðja

Árni R 


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 09:54:40 / Friðgeir Smári

próf, próf, próf

Jæja þá er svoleiðis allt í svoleiðis kvínandi yfirsnúning hérna hja okkur verðandi styrimönnum og skipðstjornarmönnum í prófonum þessa dagana!!!  Og ekki eru það beint sjö dagarnir sælir að hanga inni að læra á meðan sumarið kemur hlaupandi á móti okkur....   En þessi skítur tekur alltaf enda, prófin klárast þann 15 maí eða reyndar 16 maí fyrir sjúkraprófin.....
  
gaman gaman fyrir margan ungann mannin að þurfa að vera að læra um helgina á meðan Eiki tekur lagið og kosningavakan í háveigum! EN þar sem allir hafa lært jafn handan og virkilega vel í vetur gætu menn kanski séð sér fært um að glíma við þann gamla fjanda sem ölið og brennsin hefur uppá að bjóða!!

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 10:28:48 / Árni

Champions of England

Langar að óska öllum Manchester mönnum og knattspyrnuáhugamönnum nær og fjær til hamingju með sigur fótboltans á peningunum. Sigur United í deildinni sannar það að þú kaupir ekki titla. Einnig vil ég þakka öllum Arsenal mönnum fyrir hjálpina í gær án ykkar hefði þetta ekki orðið að veruleika fyrr en á miðvikudaginn. Lengi lifi fótboltinn !!!

» 9 hafa sagt sína skoðun

06.05.2007 20:26:35 / Garðar

LAG

 

Skoðið þetta,soldið fyndið

 

 

http://youtube.com/watch?v=Hg3GY90vOSc

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 00:19:01 / Heimir

Pabbi segir, pabbi segir, Pabbi segir....

Jæja Kompásmenn nú er stóra stundin að renna upp, það eru einungis 19 dagar í Costa del sol. Ég vill bara minna strákana mína á að fara yfir vegabréfin og ath. hvort þau séu ekki fullgild og klár í slaginn.

Það er búið að borga ferðina og ganga frá öllu sem snýr að því og raða niður á herbergi, ÞAÐ MÁ ENGINN HÆTTA VIÐ (nema nátturulega vegna alvarlegra tilfella).

Við fáum miðana í hendurnar ca 10 dögum fyrir brottför og svo græjum við gjaldeyrismálin daginn fyrir brottför, því við erum enn að innheimta styrkina.

Ég talaði við Bjarna Ármannsson og Lárus Welding nú undir kvöld og voru þeir á einu máli um það að best væri að taka bara alla heildina út í evrum og skipta svo á milli manna, þetta rökstuddu þeir með hagstæðu gengi krónunnar og svo er Nastaq vísitalan voðalega hliðholl okkur þessa dagana.

Er einhver sem vill ekki fá sinn hluta í evrum?


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2007 21:24:46 / Heimir

Lúlli laukur

Þeir sem vilja sjá Lúlla útgrátinn fyrir utan Players , eftir 1-0 tap Liverpool manna geta smellt á þennan link: http://www.123.is/album/display.aspx?fn=gaman&aid=-1920822308 Sýnum stráknum stuðning og gefum honum klapp á bakið á þessum erfiðu tímum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Leitarbox